HOME STUDIO og kennarar þeirra bera enga ábyrgð á beinum eða óbeinum skemmdum eða meiðslum í tengslum við notkun á þjónustunni og efninu á vefsíðunni.

Viðskiptavinir staðfesta að þeir skilji að jóga, rólujóga og aðrar æfingar sem eru í boði á vefsíðu HOME STUDIO krefjast líkamlegrar áreynslu sem getur tekið á og getur mögulega valdið meiðslum. Viðskiptavinir staðfesta að þeir skilji áhættuna í tengslum við notkun á efninu.

Viðskiptavinir veita HOME STUDIO lausn frá allri ábyrgð verði þeir fyrir meiðslum í tengslum við notkun á efni vefsíðunnar.

Viðskiptavinir staðfesta að vera í nógu góðu líkamlegu formi, með engin undirliggjandi meiðsli eða sjúkdóma sem geta hamlað þeim í notkun á efninu. Viðskiptavinir staðfesta að skilja að þeir bera sjálfir ábyrgð á að hafa samband við lækni áður en áskrift og notkun á efni hefst ef þeir glíma við meiðsli eða sjúkdóma eða eru að jafna sig eftir slíkt.

Viðskiptavinir staðfesta að þeir skilji að þeim ber að hætta æfingum án tafar finni þeir fyrir óþægindum eða sársauka og leita sér aðstoðar. Viðskiptavinir bera fulla ábyrgð á öllum mögulegum skemmdum sem geta átt sér stað við þátttöku í tímunum sem boðið er upp á hjá HOME STUDIO.

Viðskiptavinir staðfesta að hafa lesið, skilið og samþykkt þennan samning um skaðabótaábyrgð og skilja að við kaup á áskrift eru þeir bundnir þessum samningi.