Við lok skráningar í HOME STUDIO skuldbindur þú þig til að fylgja neðangreindum skilmálum.

1. Lýsing á þjónustu

Þjónustan felur í sér keyptan aðgang að lokuðu svæði þar sem má finna upptökur af æfingum sem gera má heima eða þar sem það hentar.  

 

2. Skyldur notenda

Allir notendur samþykkja að þeir mega ekki afrita, taka upp, taka skjámyndir, endurframleiða, dreifa, senda út, sýna, selja eða misnota efnið sem er að finna á vefsíðunni.

Meðlimir mega ekki deila eða selja notendanafn sitt og lykilorð til annarra.

 

3. Greiðslur

Til að gerast áskrifandi að vefsíðunni þarf gilt kreditkort.

Stefna um endurgreiðslur. Áskriftir eru ekki endurgreiddar og ekki má flytja áskriftir milli aðila.

Frí prufuáskrift. Við skráningu í fría prufuáskrift þar að skrá gilt kreditkort til að passa að aðgangur detti ekki niður þegar prufuáskrift lýkur. HOME STUDIO gjaldfærir ekki á kortið fyrr en prufuáskrift er lokið. Prufuáskrift breytist sjálfkrafa í mánaðarlega áskrift að 3 dögum liðnum hafi áskrift ekki verið sagt upp. Eingöngu má nota prufuáskrift einu sinni. HOME STUDIO áskilur sér rétt til að eyða reikningi sem reynir að nota prufuáskrift oftar en einu sinni.

Reikningar/gjaldfærsla. Áskrifendur eru rukkaðir mánaðarlega fyrir áskrift. Áskriftir eru sjálfkrafa endurnýjaðar að mánuði liðnum þar til þeim er sagt upp. Áskrifendur geta sagt upp áskrift hvenær sem er. Áskrift þarf þó að segja upp áður en komið er að endurnýjun mánaðarins.

Verð. Við kaup á áskrift er rukkað fyrir það gjald sem er í gildi á þeim tíma og er það gjaldið sem er rukkað mánaðarlega. Ef HOME STUDIO ákveður að hækka verð, verður haft samband við áskrifendur með a.m.k. 10 daga fyrirvara áður en hækkun tekur gildi.

 

4. Verndun persónuupplýsinga

HOME STUDIO virðir einkalíf viðskiptavina sinna. Upplýsingar um viðskiptavini eru eingöngu notaðar til að geta boðið upp á nauðsynlega þjónustu. HOME STUDIO selur ekki né deilir upplýsingum um viðskiptavini sína.

HOME STUDIO gæti haft samband við viðskiptavini sína í tengslum við nýtt efni á vefsíðunni. Ef þú hefur ekki áhuga á að fá slíkar upplýsingar getur þú afþakkað þær hvenær sem er í gegnum reikning þinn á vefsíðunni.

 

5. Meiðsli og sjúkdómar

HOME STUDIO ber ekki ábyrgð á meiðslum, veikindum, sjúkdómum eða skemmdum sem geta hlotist í tengslum við notkun á þjónustunni.

Viðskiptavinir samþykkja að taka þátt í æfingunum á eigin ábyrgð.

Viðskiptavinir bera fulla ábyrgð á að fylgja leiðbeiningum kennara til að koma í veg fyrir meiðsli.

Viðskiptavinir sem glíma við meiðsli, eru að jafna sig eftir meiðsli eða eru að glíma við hvers konar sjúkdóma eða veikindi skulu leita ráða læknis áður en áskrift er keypt.

Ófrískar konur skilja að það er ekki öruggt að stunda rólujóga á meðgöngu.

Ef viðskiptavinir finna fyrir óþægindum eða sársauka við æfingarnar skal hætta strax og leita sér aðstoðar.

 

Viðskiptavinir samþykkja og staðfesta að hafa lesið og skilið þessa skilmála og skuldbinda sig til að fara eftir þeim um leið og skráningu lýkur.