Besta leiðin til að passa upp á liðamótin sín er að halda vöðvum og beinum sterkum og stöðugum. Einkenni veikra liðamóta eru m.a. hömluð hreyfigeta, verkir og bólgur. Hér eru nokkur góð ráð til að halda liðamótum í jafnvægi:

– Passa þyngdina. Ofþyngd veldur auknum þunga á liðamót í hnjám, mjöðmum og baki. Rannsóknir sýna að með hverju aukakílói sem við bætum á okkur þá bætist fjórfalt álag á hnén.

– Byggja upp vöðva. Sterkir vöðvar styðja við liðamótin. Ef vöðvamassi í kringum liðamót er ekki nægur, færist álagið á liðamótin og þá sérstaklega á hryggsúlu, mjaðmir og hné.

– Byggja upp kjarnavöðva. Sterkir kvið- og bakvöðvar hjálpa upp á jafnvægi. Því sterkara jafnvægi, því minni líkur á að við dettum (sem getur haft neikvæð áhrif á liðamót)

– Þekkja sín takmörk. Ákveðnar æfingar geta verið of erfiðar fyrir liðamótin til að byrja með og því er mikilvægt að byrja hægt og aðlaga æfingar að sinni getu. Hlustaðu á líkamann og lærðu muninn á ógnandi sársauka og sársauka sem fylgir því að byggja upp vöðva.

– Passa upp á líkamsstöðu. Að standa og sitja bein í baki verndar liðamót frá hálsi og niður að hnjám ásamt því að verja mjaðmir og bak. Einnig er mikilvægt að passa upp á líkamsstöðu þegar við lyftum eða höldum á þungum hlutum. Sem dæmi þá þarf að passa að hafa bakpoka á báðum öxlum í stað þess að slengja honum yfir aðra öxlina til að passa upp á að jafna álagið.

– Passa mataræðið. Kalsíum byggir upp sterk bein sem styðja við liðamótin. Prótein byggir upp vöðva sem styðja við liðamótin. D-vítamín hjálpar bæði beinum og liðamótum en þetta vítamín styður við upptöku líkamans á kalsíum.

– Gera æfingar sem smyrja og liðka liðamótin.